Spurningar fyrir trúleysingja

Ég trúi á biblíuna og það siðferði sem er kennt í henni, sumir sjá hana öðruvísi en hún er og sjá einhvern hrylling út úr henni. En það er ekki réttur skilningur á biblíunni. En Guð er réttlátur Guð og fólk sleppur ekki óhegnt fyrir syndir sínar, það er orsök og afleiðing. Jesú kom í heiminn til að deyja fyrir syndir okkar til að við gætum fengið fyrirgefningu og lifað heilögu lífi. Í fullkomnum heimi án syndar, þá væri yndislegt að búa hér. Ég hvet alla til að leita Guðs af einlægni og bið Guð að hann megi leiða okkur inn á hinn rétta veg, að við getum gengið í ljósinu með honum.

 

En þá kemur að spurningunni, hvaðan hefur trúleysinginn sitt siðferði?  Einn getur verið morðingi á meðan annar er læknir og þeir hafa kannski sitthvort siðferðið, hvort er þá í raun og veru rétt? Er það meirihlutinn sem ræður eða hvernig virkar þetta eiginlega?

 

Endilega horfið á þetta video og svarið svo þessum spurningunum hér fyrir neðan.

 

 

 

Sp. 3 - Hvaðan færðu siðferði þitt?

Sp. 4 - Hvernig þróaðist siðferðið?

 


Göngum saman í ljósinu

 1Jn 1:1-10 ICE
(1)  Efni vort er það sem var frá upphafi, það sem vér höfum heyrt, það sem vér höfum séð með augum vorum, það sem vér horfðum á og hendur vorar þreifuðu á, það er orð lífsins.
(2)  Og lífið var opinberað, og vér höfum séð það og vottum um það og boðum yður lífið eilífa, sem var hjá föðurnum og var opinberað oss.
(3)  Já, það sem vér höfum séð og heyrt, það boðum vér yður einnig, til þess að þér getið líka haft samfélag við oss. Og samfélag vort er við föðurinn og við son hans Jesú Krist.
(4)  Þetta skrifum vér til þess að fögnuður vor verði fullkominn.
(5)  Og þetta er boðskapurinn, sem vér höfum heyrt af honum og boðum yður: "Guð er ljós, og myrkur er alls ekki í honum."


(6)  Ef vér segjum: "Vér höfum samfélag við hann," og göngum þó í myrkrinu, þá ljúgum vér og iðkum ekki sannleikann.
(7)  En ef vér göngum í ljósinu, eins og hann er sjálfur í ljósinu, þá höfum vér samfélag hver við annan og blóð Jesú, sonar hans, hreinsar oss af allri synd.
(8)  Ef vér segjum: "Vér höfum ekki synd," þá svíkjum vér sjálfa oss og sannleikurinn er ekki í oss.
(9)  Ef vér játum syndir vorar, þá er hann trúr og réttlátur, svo að hann fyrirgefur oss syndirnar og hreinsar oss af öllu ranglæti.
(10)  Ef vér segjum: "Vér höfum ekki syndgað," þá gjörum vér hann að lygara og orð hans er ekki í oss.

 

Jak 2:26  Eins og líkaminn er dauður án anda, eins er og trúin dauð án verka.

 

Sýnum heiminum það í orði og verki hver frelsari okkar er.


Spurning fyrir ykkur trúleysingjana

Can you provide proof and evidence that Atheism is accurate and correct?


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband